Félag Íslenskra Heilsunuddara (F.Í.H.N.) var stofnað þann 23. júní árið 1974.

Stofnfélagar voru 23 talsins en í dag eru félagsmenn rúmlega 150. Upphafsmaður að stofnun félagsins var Ólafur Þór Jónsson og var hann jafnframt fyrsti formaður félagsins. Ólafur hefur alla tíð unnið ötullega að framgöngu heilsunudds hérlendis.

Félagið hét upphaflega Félag Íslenskra Nuddara (F.Í.N.) en skipti var um nafn á aðalfundi 2004. 

Félagið leggur metnað í að standa vörð um hag félagsmanna með því að hvetja til framþróunar og mynda þannig öflugan faglegan hóp heilsunuddara á Íslandi. Starfsheitið heilsunuddari er ekki formlega verndað með lögum, eins og títt er um aðrar sambærilegar stéttir, þó að námið sé viðurkennt af Menntamálaráðuneyti. Unnið hefur verið að því ötullega undanfarin ár að fá þessa formlegu lögverndun á starfsheitinu.